Jóhanna vildi ávarpa leiðtoga- fundinn á íslensku. Stjórnendur NATO höfnuðu því.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hætti við að sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins um síðustu helgi eftir að stjórnendur bandalagsins höfnuðu ósk hennar um að fá að ávarpa fundinn á íslensku. Óskin var borin fram með þeirri skýringu að enskukunnátta forsætisráðherra væri mjög takmörkuð.
Þetta fullyrðir vefritið Deiglan og kveðst hafa fyrir þessu áreiðanlegar heimildir úr tveimur ráðuneytum.
Eyjan fjallaði um fjarveru Jóhönnu á leiðtogafundinum í frétt í gær. Þar kom fram að Jóhanna virðist um árabil hafa forðast að hitta erlenda ráðamenn, sendiherra erlendra ríkja og fulltrúa alþjóðlegra fjölmiðla.
Deiglan segir að Jóhanna hafi upphaflega ætlað að sækja leiðtogafundinn. Af hálfu íslenskra stjórnvalda hafi eftir því verið leitað við höfuðstöðvar NATO að forsætisráðherra fengi að halda ræðu sína á fundinum á íslensku, þar sem enskukunnátta hennar væri mjög takmörkuð. Deiglan segir að þessari beiðni hafi umyrðalaust verið hafnað af stjórnendum NATO. Þegar sú niðurstaða lá fyrir hafi íslensk stjórnvöld tilkynnt að í stað forsætisráðherra myndi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sækja fundinn fyrir hönd Íslands. Sú tilkynning hafi verið send út 2. apríl, degi áður en leiðtogafundurinn hófst.
Orðrétt segir í frétt Deiglunnar:
Málið þykir mikill álitshnekkir fyrir Íslendinga sem stofnþjóð í NATO. Viðmælendur Deiglunnar í utanríkisþjónustunni segja málið allt hið vandræðalegasta enda hafi Íslendingar ávallt getið sér gott orð í alþjóðasamstarfi fyrir að vera vel menntaðir og hafa til að bera góða tungumálakunnáttu. Sömu viðmælendur segja að á leiðtogafundinum hafi ekki nokkur maður trúað þeirri fjarvistarskýringu íslenska forsætisráðherrans að hún væri of upptekin til að mæta til fundarins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is