Þriðjudagur 07.04.2009 - 23:37 - Ummæli ()

Mikill völlur á FL Group þegar Valhöll fékk 30 milljónir. Seldi Sterling og stofnaði Geysi Green

hannessmarason.jpgDaginn áður en FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn með leynilegu framlagi upp á 30 milljónir króna seldi það dótturfélag sitt, lággjaldaflugfélagið Sterling, fyrir 20 milljarða króna. Í sömu vikunni keypti FL Group tæplega 6% hlut í AMR Corp., rekstrarfélagi American Airlines. Nokkrum dögum seinna var tilkynnt að FL Group hefði í félagi við Glitni og verkfræðistofuna VKG-Hönnun stofnað Geysi Green Energy sem ætlað var að fjárfesta í verkefnum tengdum sjálfbærri orkuframleiðslu víða um heim.

Samkvæmt frétt Stöðvar 2 í kvöld var styrkurinn til Sjálfstæðisflokksins greiddur 29. desember 2006. Tilkynnt var um sölu Sterling 28. desember 2006 og um stofnun Geysi Green Energy 6. janúar 2007.

Mikill völlur var á FL Group á þessum tíma. Um áramótin fjallaði Lundúnablaðið Times um Hannes Smárason forstjóra FL Group og kallaði hann stórlax í viðskiptalífinu.

„Við viljum helst ekki skrifa tékka sem er minni en fimm til tíu milljarðar í einstakri fjárfestingu. Annars yrðum við með of mörg verkefni í gangi og athyglin of dreifð,“ var haft eftir Hannesi þegar hann var um þessi áramót kosinn maður ársins í íslensku viðskiptalífi af Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins.

Haustið 2007 kom í ljós að samstarf við Orkuveitu Reykjavíkur var ein helsta forsendan fyrir útrás Geysi Green Energy á alþjóðlegan markað. Þá hófst svokallað REI-mál þar sem við sögu komu nokkrir forystumenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í borgarstjórn. Málið leiddi á endanum til samstarfsslita í borgarstjórn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is