SA: Óttast „dómínóáhrif“ fjölda- gjaldþrota fyrirtækjanna – gætu reynst hinum vel stæðu banvæn
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í Fréttablaðinu í dag að samkvæmt mati SA gæti þriðjungur til fjórðungur fyrirtækja á landinu verið á leið í gjaldþrot. Óttast sé að dómínóáhrif gjaldþrotanna geti reynst banvænt högg, jafnvel þeim fyrirtækjum sem vel standa.
Hannes segir verst að lífvænleg fyrirtæki gætu orðið fyrir banvænu höggi vegna gjaldþrots annarra fyrirtækja því sæmilega statt fyrirtæki gæti lent í að fá ekki skuldir gjaldþrota fyrirtækja greiddar.
Afleiðingin gæti orðið gjaldþrot hins stönduga fyrirtækis.
Þá segir hann stjórnvöld virðast ómeðvituð um hversu vandi íslenskra fyrirtækja sé stór, hundruð fyrirtækja rói lífróður og gjaldþrotum fjölgi með hverjum mánuðinum.
Þórarinn Gunnar Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, segir tölur um skuldastöðu íslenskra fyrirtækja ófullnægjandi, en Seðlabanki Íslands vinni að úttekt á skuldastöðunni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is