Miðvikudagur 08.04.2009 - 17:03 - Ummæli ()

Hilton vill sumarbrúðkaup á Bahamas

hiltondoug.jpgParis Hilton ætlar sem kunnugt er að skella sér í heilagt hjónaband með hafnaboltakempunni Doug Reinhardt, og nú er á dagskrá að vígslan verði í sumar.

Vinir Hilton segja hana tilbúna til að bindast Reinhart fyrir lífstíð þrátt fyrir að í síðasta mánuði hafi erfðaprinsessan haldið því fram að þau væru ekki einu sinni trúlofuð.

„Nú er hugmyndin að hjónavígslan verði í ágúst á Bahamaeyjum,“ segja heimildarmenn.
„Þeim þykir ofsalega vænt hvort um annað og hugsa þess vegna: „Hvers vegna ekki?“" er haft eftir sömu heimildum.

Fyrr í vikunni sagði Hilton við blaðamenn að hafnaboltamaðurinn yrði örugglega eiginmaður hennar.

„Það er ekki eins og við höfum verið að kynnast, við erum búin að þekkjast í bráðum ár. Ég er innilega ástfangin af honum og ofsalega hamingjusöm,“ sagði væntanleg brúður.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is