Miðvikudagur 08.04.2009 - 18:37 - Ummæli ()

Sjálfstæðisflokkurinn fékk einnig 25 milljóna króna styrk frá Landsbanka. Endurgreiðir styrkina

valholl4.jpgSjálfstæðisflokkurinn upplýsir í yfirlýsingu frá Bjarna Benediktssyni formanni flokksins, að flokkurinn hafi þegið 25 milljóna króna styrk frá Landsbankanum árið 2006 auk 30 milljóna króna styrksins frá FL Group.

Flokkurinn ætlar að endurgreiða styrkféð, alls 55 milljónir króna, og birta yfirlit um styrki til flokksins frá lögaðilum sem bárust á árinu 2006 og nema hærri fjárhæð en einni milljón króna.

Yfirlýsing Bjarna Benediktssonar er eftirfarandi:

„Ég harma að Sjálfstæðisflokkurinn hafi veitt styrkjum viðtöku frá einstökum aðilum upp á tugi milljóna. Það stangast gróflega á við þau gildi sem ég vil að Sjálfstæðisflokkurinn starfi eftir. Ég hef kallað eftir upplýsingum um bókhald flokksins frá þessum tíma og komist að þeirri niðurstöðu að tveir styrkir sem bárust séu óeðlilega háir, annarsvegar frá FL Group og hinsvegar frá Landsbankanum. Það er niðurstaða nýrrar forystu Sjálfstæðisflokksins að skila verði þessum styrkjum. Ég hef því kallað eftir því að bókhald flokksins frá árinu 2006 verði opnað og upplýst um öll fjárframlög frá fyrirtækjum sem eru yfir milljón krónur.
Ég skora jafnframt á aðra stjórnmálaflokka að gera slíkt hið sama í þeim tilgangi að eyða öllum vafa um óeðlileg framlög í aðdraganda lagasetningarinnar um fjármál stjórnmálaflokka. Ég tel þessar aðgerðir nauðsynlegt skref til að fjármál Sjálfstæðisflokksins séu hafin yfir vafa og traust ríki í garð flokksins. Þetta er liður í nauðsynlegu uppgjöri innan flokksins og undirstrikar vilja nýrrar forystu til að ganga hreint til verks í þessum efnum sem öðrum.“

Haft var eftir Jóhönnu Sigurðardóttur, formanni Samfylkingarinnar,  í Sjónvarpsfréttum að hún „ætlaði að beita sér fyrir því að upplýst yrði um styrki til flokksins fyrir árið 2006 og aflétta trúnaði þar sem það ætti við.“ Hún sagði að sér væri ekki kunnugt um að Samfylkingin hefði fengið styrki frá FL Group.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is