Ný landskönnun Capacent-Gallup: Sjálfstæðisflokkur tapar ríflega þriðjungi þingstyrksins
Sögulegt fylgistap Sjálfstæðisflokksins á landsvísu heldur áfram í nýrri vikulegri könnun Capacent-Gallup fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Flokkurinn tapar níu þingsætum eða ríflega þriðjungi af þingstyrk sínum samkvæmt könnuninni og fengi 16 þingsæti í stað þeirra 25 sem flokkurinn hlaut kosningunum 2007.
Könnunin var gerð dagana 8. – 14. apríl þegar miklar umræður voru um styrki fyrirtækja til stjórnmálaflokkanna. Flokkurinn mælist með 23,3% sem er 2,5 prósentum minna en í könnuninni fyrir viku.
Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn en missir þó fylgi frá síðustu viku og fær nú 30,7% og fengi 21 þingmann, þremur fleiri en í kosningunum 2007.
Vinstri hreyfingin grænt framboð mælist með 28,2%, rúmum tveimur prósentum meira en í síðustu viku. Vinstri græn fengju 19 þingmenn, 10 fleiri en í kosningunum.
Þingmeirihluti ríkisstjórnarflokkanna samkvæmt könnunni er umtalsverður, eða 40 þingsæti.
Framsóknarflokkurinn bætir við sig 1,3 prósentum frá síðustu viku og mælist með 11,1%. Flokkurinn fengi sjö þingmenn, eins og í kosningunum 2007.
Aðrir flokkar kæmu ekki manni á þing.
Borgarahreyfingin sem mældist með rúmlega 8% stuðning í Reykjavíkurkjördæmi norður fær 4,4% á landsvísu, sem dugir ekki til að fá þingmann kjörinn.
Frjálslyndir sem fengu fjóra þingmenn síðast kæmu ekki að manni með 2,0%. Lýðræðishreyfingin mælist með 0,4%.
Úrtakið var tæplega 2500 og svarhlutfall 67%.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is