Fimmtudagur 16.04.2009 - 19:53 - Ummæli ()

Samningur við Seðlabanka Evrópu á grundvelli aðildarumsóknar eina von krónunnar. Annars hrun

vidskiptabladid-sigurdur.jpgÞeim fer fjölgandi í viðskiptapressunni sem staðhæfa að tafarlaus umsókn Íslands um ESB aðild sé ekki lengur spurning um pólitískt val heldur þjóðhagsleg nauðsyn, því ekkert annað geti lengur komið í veg fyrir enn frekara hrun efnahagslífsins.

Sigurður Már Jónsson, aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins, segir í pistli í blaðinu í dag að haldi gengi krónunnar áfram að þróast með sama hætti og undanfarið bendi margt til þess að landið verði orðið gjaldþrota á sjálfan kjördag. Sigurður segir að varla verði séð að annað geti orðið okkur til bjargar en að sækja um ESB aðild.

„Undirritaður hefur fyrir því heimildir að það sé góður möguleiki á því að semja við Seðlabanka Evrópu á grundvelli aðildarumsóknar strax núna í sumar. Það væri þá samningur sem fæli í sér að Seðlabanki Evrópu myndi styðja við krónuna sem við núverandi aðstæður gæti orðið eina björgun hennar. Það byggist á því að í EES-samningnum er innifalinn svokallaður neyðarréttur sem ekki hefur reynt á ennþá. Ef hann fæst nýttur þá gæti komið þar sá bakstuðningur sem krónan þarfnast svo sárlega,“ segir Sigurður í pistlinum.

Hann segir íslenskt efnahagslíf ekki þola gengisvísitölu langt yfir 200 stigum í langan tíma, og þjóðargjaldþrot sé yfirvofandi. Hann segir að fjármálaleg einangrun blasi við landinu, sem sé augljóslega stórhættuleg staða. Hann segir undarlega lítið fjallað um þessa hættu og líkir því við þá litlu umfjöllun sem hættuleg staða bankanna fékk í fyrra.

Sigurður segir að ef þessi möguleiki sé ekki nýttur sé verið að kalla yfir þjóðina nýjar hörmungar. „Við þolum ekki fleiri áföll í líkingu við það sem átti sér stað síðasta haust,“ segir hann og tekur mjög í sama streng og Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri og ritstjóri Vísbendingar í grein í Morgunblaðinu í dag, sem varaði á sama hátt við öðru stóráfalli á Íslandi ef ekki yrði sótt um aðild að Evrópusambandinu. Benedikt segir að þeir sem hafni nú Evrópusambandsaðild hafi ekki bent á neina aðra leið úr rústum bankahrunsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is