Breytingar á búvörusamningum undirritaðar í dag – greiðslur til bænda skertar næstu þrjú ár
Í dag skrifuðu Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og fjármálaráðherra, og fulltrúar Bændasamtaka Íslands, undir breytingar á gildandi samningum um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu og sauðfjárræktar.
Á mbl.is segir að greiðslur til bænda verði skertar næstu þrjú ár miðað við gildandi samninga, en samningarnir framlengdir um tvö ár.
Í fjárlögum 2009 var ákveðið að skerða samningsbundnar greiðslur samkvæmt búvörusamningum vegna fyrirséðra erfiðleika í ríkisfjármálum.
Síðan hafi aðilar kannað nánar réttarstöðu gildandi samninga og niðurstaða sé að veruleg réttaróvissa ríki um slíka skerðingu gagnvart rétti einstakra bænda.
Af þessum sökum hafi samningaviðræður verið í gangi milli ríkisvalds og bænda en nú hafi náðst sátt um breytingar á gildandi búvörusamningum.
Helstu breytingarnar eru að framlög á árinu 2009 verði samkvæmt fjárlögum; að framlög ársins 2010 verði 2% hærri en 2009, óháð verðlagsþróun; að árið 2011 hækki framlög aftur um 2%, en auk þess bætist við helmingur af því sem upp á vantar til að framlag ársins uppfylli ákvæði gildandi samnings. Þó verði hækkun milli ára ekki umfram 5%.
Þá verði árið 2012 greitt samkvæmt gildandi samningi, en þó með fyrirvara um 5% hámarkshækkun eins og árið 2011. Allir samningarnir verði framlengdir um tvö ár, að mestu á óbreyttum forsendum.
Ráðuneytið segir bændur færa umtalsverða fórn í tvö til þrjú ár miðað við gildandi samninga en fái í staðinn framlengingu um tvö ár þegar ætla má að ástand hafi batnað.
Samkomulagið feli því í sér aukið rekstraröryggi í landbúnaði til lengri tíma. Það sé ekki síst mikilvægt nú með tilliti til fæðuöryggis þjóðarinnar.
Steingrímur segir, að með samkomulaginu sé stigið mikilvægt skref í átt til þjóðarsáttar um nauðsynlegar aðgerðir.
Samkomulagið er undirritað með fyrirvara um nauðsynlegar lagabreytingar Alþingis og samþykki í atkvæðagreiðslu meðal bænda, segir á mbl.is.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is