Laugardagur 18.04.2009 - 11:19 - Ummæli ()

CCP-tölvufyrirtækið hugsanlega tilneytt að flytja höfuðstöðvar úr landi vegna gjaldeyrishafta

vilhjalmur.jpgVilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður tölvufyrirtækisins CCP, segir hugsanlegt að flytja þurfi höfuðstöðvar fyrirtækisins úr landi vegna gjaldeyrishafta, en fyrirtækið geti ekki búið við höftin nema í mesta lagi tvö ár til viðbótar.

Vilhjálmur segir í viðtalið við Fréttablaðið að ef gjaldeyrishöftin séu komin til að vera til lengri tíma, eins og útlit sé fyrir, komi að því að félag eins og CCP þurfi að flytja höfuðstöðvar sínar eitthvert annað.

Hann segir aðild að Evrópusambandinu einu sjáanlegu leiðina út úr núverandi ástandi.
„Við getum ekki verið lengi innan virkisveggja þar sem erlent fjármagn
kemst hvorki inn né út,“ segir Vilhjálmur í samtali við blaðið.

Hann segir þó félagið vilja vera áfram hér á landi. Starfsmenn verði ekki færðir úr landi en félagið verði hins vegar að vera skráð í landi þar sem erlent fjármagn sé aðgengilegt.

CCP hannaði og framleiðir fjölþátttökutölvuleikinn Eve Online, sem hefur verið einn af vinsælustu tölvuleikjum þeirrar tegundar undanfarin ár.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is