Þriðjudagur 21.04.2009 - 19:06 - Ummæli ()

Stöð 2 nafngreinir sex stjórnmála- menn sem hafi fengið háa styrki frá Baugi og FL Group

althingi-300×2004.jpgStórfyrirtæki á borð við Baug og FL Group styrktu frambjóðendur í prófkjörum stjórnmálaflokkanna árið 2006 um milljónir króna. Einstakir frambjóðendur þáðu allt að tvær milljónir í styrk.

Þetta var fullyrt í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Fréttastofan sagði að helmingur þingmanna hefði ekki viljað gefa upplýsingar um fjármögnun prófkjörsbaráttunnar fyrir síðustu þingkosningar þegar eftir því var leitað.

Stöð 2 nafngreindi sex alþingismenn sem sagt var að hefðu þegið styrki frá Baugi og FL Group. Þetta eru sjálfstæðisþingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson, Illugi Gunnarsson og Guðfinna Bjarnadóttir, samfylkingarfólkið Helgi Hjörvar og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, og framsóknarborgarfulltrúinn fyrrverandi, Björn Ingi Hrafnsson.

Fram kom að enginn viðmælenda Stöðvar 2 hefði viljað staðfesta að hafa þegið slíkan styrk. Tekið var fram að ekki hefði náðst í Helga Hjörvar við vinnslu fréttarinnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is