Miðvikudagur 22.04.2009 - 14:33 - Ummæli ()

DV: Baugur styrkti Jóhönnu í prófkjöri. Guðlaugur Þór fékk 4 milljónir frá Baugi og FL Group

johanna-sig2.jpgJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er meðal þeirra stjórnmálamanna sem fengu fjárstyrki frá Baugi í prófkjörsbaráttunni árið 2006. Guðni Ágústsson fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins fékk einnig styrk frá fyrirtækinu.

Hæstu styrkir Baugs til stjórnmálamanna námu tveimur milljónum króna, en lægstu styrkir 200 þúsund krónum.

Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður er einn þriggja stjórnmálamanna sem DV hefur upplýsingar um að hafi fengið hæstu styrkina frá Baugi í prófkjörsbaráttunni árið 2006: tvær milljónir króna. DV segir að Guðlaugur hafi líka þegið tveggja milljóna króna styrk frá FL Group.

Þetta kemur fram á vef DV sem ætlar í dag að birta lista yfir styrki Baugs til sautján stjórnmálamanna árið 2006. Þeir eru úr Framsóknarflokknum, Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum.

Ekki kemur fram hve háir styrkir Baugs til Jóhönnu og Guðna voru, en það verður væntanlega upplýst síðar í dag.

Í gær skýrði Stöð 2 frá því að sex stjórnmálamenn hefðu þegið allt að 2 milljónir króna frá Baugi og FL Group í prófkjörsbaráttu 2006. Þetta eru Guðfinna Bjarnadóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Illugi Gunnarsson, Helgi Hjörvar, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Björn Ingi Hrafnsson.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is