Miðvikudagur 22.04.2009 - 06:54 - Ummæli ()

Efnahagsspá AGS í dag – trúlega sú dekksta í sextíu ár. Batinn hægur og kvalafullur og tekur mörg ár

imf_international_monetary_fund_h_q.jpgÍ dag birtir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn heims-efnahagsspá sína, en búist er við að hún verði dekkri en nokkur efnahagsspá sjóðsins í 60 ár.
Þetta kom fram í morgunfréttum RÚV.

AGS telur lánsfjárkreppuna í heiminum koma til með að kosta ríki og fjármálastofnanir allt að fjögur þúsund milljarða dollara, sem er jafnvirði um 520 þúsund milljarða króna.

Sjóðurinn telur ekki að fjármálakerfi heimsins muni ná sér á strik fyrr en eftir mörg ár.

Þó gott sé að gripið sé til brýnna ráðstafana svo stokkað verði upp og hreinsað til í bönkum og fjármálastofnunum verði batinn engu að síður hægur og kvalafullur, segir í nýrri skýrslu sjóðsins.

Ennfremur að bankar og fjármálastofnanir gætu þurft allt að 1.700 milljarða dollara úr opinberum sjóðum til viðbótar öðrum styrkjum, eða um 220 milljarða króna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is