Fimmtudagur 23.04.2009 - 13:17
- Ummæli
()
Björg Eva framkvæmdastjóri samstarfs Vinstri grænna flokka á Norðurlöndum
Björg Eva Erlendsdóttir, ritstjóri Smugunnar, tekur við framkvæmdastjórn samstarfsvettvangs Vinstri grænu flokkanna á Norðurlöndum í sumar.
Starfið snýr aðallega að skipulagningu samstarfsins og miðlun upplýsinga á milli systurflokkanna sem eru: Vänsterpartiet í Svíþjóð, Socialistisk Folkeparti og Enhedslisten í Danmörku, Sosialistisk Vensterparti í Noregi, Vaxemmistoliitto í Finnlandi, Inuit Ataqatigiit í Grænlandi og Tjoðveldisflokkurinn í Færeyjum.
Sagt er frá þessu á vef Vinstri grænna.
Þetta er í fyrsta sinn sem starfið fellur í skaut Íslendinga, en miðstöð samstarfsins verður rekin hér á landi.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is