Eyjan óskar lesendum sínum gleðilegs sumars og þakkar ánægjulega samfylgd í vetur
Í dag halda landsmenn sumardaginn fyrsta hátíðlegan, og sem fyrr eru skátar í aðalhlutverki hátíðarhaldanna.
Í Reykjavík verða skátar með dagskrá á sex stöðum í höfuðborginni og bjóða upp á sýningar, tónlistaratriði og leiktæki fyrir börnin. Dagskráin hefst upp úr hádeginu á flestum stöðum.
Skátamessa verður í Hallgrímskirkju nú klukkan 11 að venju.
Í kvöld verður kvöldvaka á ylströndinni í Nauthólsvík þar sem verður grillað og sungið eins og skátum einum er lagið.
Þá munu skáta vera með messur og dagskrá víða um land.
Sumarmánuðurinn harpa gengur í garð í dag og eins og segir í gömlu kvæði um nöfn mánaðanna verkur „harpa von og kæti, vingjarnleg og kvik á fæti“.
Margar skemmtilegar hefðir eru tengdar sumardeginum fyrsta og til dæmis algengt að að börn fái sumargjafir frá foreldrum sínum.
Á vísindavef Háskóla Íslands segir að sumardagsgjafir séu gamall siður á Íslandi, meira að segja mun eldri en siðurinn að gefa jólagjafir. Matarveisla hafi einnig verið haldin sem þótti ganga næst jólunum.
Þá sé sumardagurinn fyrsti þekktur undir nafninu yngismeyjadagur, en þá eiga stúlkur að renna hýru auga til pilta og reyna að vekja athygli þeirra á sér. Samkvæmt heimildum máttu þær yngismeyjar, sem áttu ástmenn sem reru þennan dag, gera tilkall til hlutarins sem þeir fengu.
Einnig kemur fram að menn virðist hafa litið á fyrsta dag sumars sem upphaf ársins, sem sést á því að aldur manna var jafnan talinn í vetrum áður fyrr og svo er enn um aldur húsdýra.
Liðinn veturinn hefur verið óvenju viðburðaríkur og erfiður landsmönnum, en Eyjan óskar lesendum sínum að sjálfsögðu gleðilegs sumars og þakkar samfylgdina í vetur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is