Fimmtudagur 23.04.2009 - 11:50 - Ummæli ()

Könnun: Fylgið hrynur af Sjálfstæðisflokki í Suðvestur – aðeins Bjarni og Katrín næðu inn

althingishusid2.jpgFylgið hrynur af Sjálfstæðisflokknum í Suðvesturkjördæmi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, en fylgi flokksins mælist aðeins 23,1%.

Það þýðir að kjördæmakjörnir þingmenn yrðu aðeins tveir, þ.e. formaður flokksins, Bjarni Benediktsson, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður.

Samfylkingin fengi 32,2% atkvæða samkvæmt könnuninni og flesta kjördæmakjörna þingmenn, eða fjóra.

Vinstri græn bæta verulega við sig frá síðustu kosningum og fá 21,1% fylgi og tvo þingmenn.

Borgarahreyfingin fengi 10,2% og kjördæmakjörinn mann inn,  og Framsóknarflokkur kæmi einnig manni inn með 8,6% fylgi.

Frjálslyndi flokkurinn fær nú aðeins 1,2% fylgi í kjördæminu, en fékk 6,7% atkvæða 2007.  Þá nýtur Lýðræðishreyfingin 0,7% stuðnings og hvorki hún né Frjálslyndi flokkurinn  kæmu inn manni.

Í Reykjavíkurkjördæmi suður fengi Sjálfstæðisflokkurinn 20,4% atkvæða samkvæmt könnuninni.

Þar mælist hinsvegar Samfylkingin stærst með 39,4% fylgi, Vinstri græn fengju 24,1% og Borgarahreyfingin 8,5%.

Aðrir kæmu ekki manni að, en í kjördæminu styðja 4,8% Framsóknarflokkinn, 1,6% Frjálslynda flokkinn og 1,1% Lýðræðishreyfinguna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is