Fimmtudagur 23.04.2009 - 17:28 - Ummæli ()

Mia Farrow í hungurverkfall

mia_farrow1.jpgÞrátt fyrir að hafa verið kokkáluð af fósturdóttur sinni hér um árið hefur Mia Farrow ekki látið bugast, en hún ætlar sér í hungurverkfall sem mun hefjast á mánudaginn næsta.

Hungurverkfall Miu mun vera til að beina sjónum heimsins að þjóðarmorðunum í Darfur en Mia tekur málstað þeirra einkar nærri sér.

Í hungurverkfallinu ætlar Mia að nærast einungis á vatni og setja markið á 21 dag, en þá mun hún hætta.

Þrátt fyrir aðvaranir frá lækni, vinum og vandamönnum ætlar leikkonan, sem nú er 64 ára, ekki að gefa eftir.

Hún segir það ekki viðunandi að saklaus börn, konur og gamlingjar þurfi að láta lífið vegna skorts á mat eða drykkjarföngum, en hún ákvað að fara í hungurverkfallið þegar stjórnvöld í Súdan ráku alþjóðlegar hjálparstofnanir úr landinu í síðasta mánuði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is