Laugardagur 25.04.2009 - 16:46 - Ummæli ()

Grímsey: Kjörfundi lokið með 74% kjörsókn. Einnig kosið um sameiningu við Akureyri

kjorkassi2009.jpgGrímseyingar voru að venju fyrstir til að ljúka kjörfundi í dag. Þegar kosningu lauk á staðnum um klukkan hálf fjögur höfðu 39 af 58 á kjörskrá greitt atkvæði á kjörstað, en að auki voru 4 utankjörfundaratkvæði.  Kosningaþátttakam í Grímsey var því 74,13%.

Þetta kemur fram á mbl.is.

Grímseyingar þurftu ekki aðeins að taka afstöðu til stjórnmálaflokkanna, heldur var einig kosið um sameiningu sveitarfélagsins við Akureyri. Niðurstöður þeirrar kosningar verða birtar með öðrum tölum í kvöld.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is