Þingkosningarnar: Góð kjörsókn um land allt. Svipað og kosningunum 2007
Kjörsókn í alþingiskosningunum hefur farið vel af stað. Kjörfundur hófst víðast hvar kl. 9 í morgun og lýkur kl. 22, en upp úr því má búast við fyrstu tölum úr nokkrum kjördæmum.
Á mbl.is segir að kjörsókn í Reykjavík norður hafi verið 13,07% klukkan 12 og þá höfðu 5223 manns kosið. Í Reykjavík suður höfðu 5991 kosið klukkan 12 eða 13,69%. Þetta er svipað og í þingkosningunum 2007.
Í Suðvesturkjördæmi höfðu samkvæmt mbl.is 4576 manns kosið klukkan 11 eða 7,9% kjósenda kjördæmisins
Á vef Sunnlendings segir að kjörsókn í Suðurkjördæmi sé mjög góð og sérstaklega góð í Árborg.
Í Norðvesturkjördæmi opnuðu flestir kjörstaðir klukkan 10 en aðrir ekki fyrr en klukkan 12.
Kjörsókn í Norðausturkjördæmi er sögð góð.
Myndina tók Rúnar Hreinsson ljósmyndari Eyjunnar á einum kjörstaðanna í morgun.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is