Mánudagur 27.04.2009 - 15:03 - Ummæli ()

Björgvin G: Alþingi greiði atkvæði um aðildarumsókn að ESB. Ögmundur vill að þjóðin skeri úr

bjorgvin-g5.jpgBjörgvin G. Sigurðsson, alþingismaður og oddviti Samfylkingar í suðurkjördæmi, segir stjórnarflokkana verða að ná saman um ESB málin. Hann segist í grein á vef Sunnlendings.is trúa því að þetta gerist „með lýðræðislegri aðkomu almennings og Alþingis að málinu.“

Hann segir stuðning við aðildarumsókn að ESB aldri hafa verið jafn afgerandi og leggur til að Alþingis keri úr um málið.

„Til að mynda mætti vel hugsa sér að ríkisstjórnin legði fyrir Alþingi ályktun um aðildarumsókn að ESB. Málið er þverpólitískt í eðli sínu og þannig á að nálgast það. Sé á Alþingi meirihluti er málið í lýðræðislegum farvegi þings og þjóðar. Við höfum viljann til samstarfs. Nú er að finna leiðina,“segir Björgvin.

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra VG. Hann segir í samtali við mbl.is að sjálfur telji hann að það hafi aldrei verið vitlausara en nú að ganga í Evrópusambandið, en segir að þjóðin verði sjálf að leiða Evrópumálið til lykta. Hvernig að slíkri atkvæðagreiðslu verði staðið sé einfaldlega tæknilegt útfærsluatriði og verið sé að ræða það í ríkisstjórninni núna hvort að greiða eigi atkvæði fyrir viðræður eða bara eftir að þeim er lokið.

Skúli Helgason, nýkjörinn Reykjavíkurþingmaður Samfylkingarinnar, leggur á sama hátt og Björgvin til að þingið fjalli um málið. Hann segir m.a. á vefsíðu sinni í dag: „Það er farsælast fyrir málið að stuðningsmenn í öllum flokkum komi að lausn þess á þinginu og ef ákveðið verður að leggja inn umsókn þá verði jafnt stuðningsmönnum og andstæðingum aðildar gefinn kostur á því að móta samningsmarkmið Íslands.  Þar þurfa aðilar vinnumarkaðarins og Bændasamtökin að slíðra sverðin, Samtök iðnaðarins og LÍÚ, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur, VG og Framsókn, Sammála og Heimssýn.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is