Mánudagur 27.04.2009 - 16:07 - Ummæli ()

Stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar og VG í Norræna húsinu síðdegis. Engin tímamörk

norraena-husid2.jpgFyrsti formlegi fundur forystumanna Samfylkingar og Vinstri grænna um myndun nýrrar ríkisstjórnar verður haldinn í Norræna húsinu og hefst klukkan 17.

Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, fór með fullt umboð til myndun ríkisstjórnar með VG af þingflokksfundi eftir hádegið á fund forseta Íslands þar sem hún gerði honum grein fyrir stöðunni.

Fundurinn með forsetanum varð öllu legri en til stóð og lauk ekki fyrr en um klukkan 17. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands sagði eftir fundinn að stjórnskipulega séð væri engin þörf á tímamörkum af hans hálfu í stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna því stjórnin væri fullburðug og komin með meirihluta Alþingis á bakvið sig og þjóðarinnar í kosningum einnig.

Jóhanna sagði viðræðurnar við forsetann hafa verið „góðar og gagnlegar“ og að flokkarnir myndu taka sér þann tíma sem þyrfti til að klára stjórnarmyndunarviðræðurnar „fljótt og vel.“

Jóhanna sagði eftir þingflokksfundinn fyrr í dag vonast til, að hægt yrði að kalla Alþingi saman eftir 2-3 vikur.  Hún kvaðst bjartsýn á að niðurstaða næðist í Evrópusambandsmálum í viðræðum við VG, samkvæmt frétt mbl.is. Hún sagði að sérstakur hópur á vegum stjórnarflokkanna ætti að að leiða til lykta hvernig þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu verði háttað.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sem einnig fékk fullt umboð frá þingflokki sínum til að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður segist einnig bjartsýnn á að stjórnarmyndun takist þrátt fyrir skiptar skoðanir í Evrópumálum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is