Þriðjudagur 28.04.2009 - 18:06 - Ummæli ()

Stjórn Borgarahreyfingarinnar: Þráinn meti sjálfur töku heiðurslauna með þingmennsku

thrainn-xo.jpgStjórn Borgarahreyfingarinnar segir að þingmenn eigi ekki að taka laun frá Alþingi fyrir önnur störf ótengd þingstörfum og mælist eindregið til að slíkum launum verði annað hvort afdráttarlaust afsalað eða þau látin renna til góðgerðarmála. Í tilfelli Þráins Bertelssonar þá telur stjórnin að hafa beri í huga að heiðurslaun hans séu ekki hefðbundin laun og segir það hans að meta þetta.

Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn hreyfingarinnar hefur sent frá sér vegna heiðurslauna Þráins,  sem talsvert hefur verið deilt á. Ályktunin er eftirfarandi:

„Að gefnu tilefni hefur stjórn Borgarahreyfingarinnar – þjóðin á þing  samþykkt eftirfarandi tillögu til þingmanna sinna.

Stjórn Borgarahreyfingarinnar – þjóðin á þing  telur að starf þingmanns sé fullt starf og að þingmenn eigi ekki að taka laun frá Alþingi fyrir önnur störf ótengd þingstörfum meðan á þingsetu stendur. Í þeim tilfellum sem slíkt kemur upp eru það eindregin tilmæli stjórnarinnar að slíkum launum verði annað hvort afdráttarlaust afsalað eða þau látin renna til góðgerðarmála.

Í tilfelli Þráins Bertelssonar þá telur stjórnin að hafa beri í huga að heiðurslaun til listamanna eru verðlaun fyrir áður unnin störf og fyrir framúrskarandi árangur á sviði lista, en ekki hefðbundin laun í skilningi þess orðs, þótt verðlaunin séu greidd út reglulega og yfir langt tímabil. Því sé það á hans færi að ákveða með hvaða hætti hann nýtir þau laun.

Borgarahreyfingin er ný hreyfing og hefur enn ekki náð að setja sér skrifaðar reglur í öllum málum er snúa að innra starfi hennar, né heldur að setja sér nákvæmar reglur varðandi öll önnur mál er upp kunna að koma við þá nýju stöðu að vera orðinn hluti af lögjaffarvaldinu.  Hins vegar liggur fyrir að hreyfingin mun setja sér skýrar reglur þ.a.l. eins fljótt og auðið er.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is