Laugardagur 02.05.2009 - 11:43 - Ummæli ()

Gylfi: Viðbrögð mótmælenda ekki áfall – milljón á mánuði ekki óeðlileg né tengsl við Samfylkingu

gylfi_arnbjornsson4.jpgMjög góð þátttaka var í kröfugöngum verkalýðsins um land allt í gær. Þúsundir tóku þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna í höfuðborgarsvæðinu, en hópur anarkista lét til sín heyra meðan Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, flutti ræði sína. Hópurinn barði á potta og pönnur og púaði á ræðu Gylfa.

Gylfi sagði í Vikulokum RÚV í morgun að þessi viðbrögð hefðu ekki verið áfall í sjálfu sér.

„Það kemur ekki á óvart að við í verkalýðshreyfingunni fáum á okkur gagnrýni því það er vissulega mikil reiði í samfélaginu,“ sagði Gylfi.

Hann sagði þó verkalýðshreyfinguna hafa verið í grimmri andstöðu við efnahagsstefnu ríkisstjórna undanfarinna ára og hafa varað við erlendum lántökum. Að sama skapi hafi ýmsar aðgerðir verið í gangi til að styrkja stöðu félagsmanna.

Hvað þá gagnrýni varðaði að hann væri ótrúverðugur þar sem hann væri flokksmaður Samfylkingar og með laun upp á milljón mánuði, sagðist Gylfi ekki vera mjög virkur í Samfylkingunni og ekkert sérlega vel þokkaður þar, enda oft gagnrýnt flokkinn.

Launin væru þokkaleg en starfinu fylgdi mikið álag og mikil vinna og það væri fráleitt að hann skammtaði sér laun, eins og haldið hefur verið fram.

Þá sagði Gylfi að honum fyndist fullmikil taugaveiklun í gangi varðandi stjórnarmyndun, ekki væri nema vika frá kosningum og eðlilegt að menn þyrftu tíma. Hinsvegar þyrfti að  sjálfsögðu að koma saman stjórn sem fyrst og ráðast í þau erfiðu verkefni sem bíða.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is