Þriðjudagur 05.05.2009 - 14:21 - Ummæli ()

Gylfi Magnússon: Svigrúm fyrir jafn hraða lækkun vaxta og verðbólgu

gylfi-magnusson.jpgGylfi Magnússon viðskiptaráðherra segist telja að svigrúm sé fyrir að nafnvextir lækki jafnhratt og verðbólgan og að hann myndi fagna djarfri ákvörðun Seðlabankans um vaxtalækkun.

Þetta kemur fram í frétt mbl.is af blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningarhúsinu í dag, þar sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sitja fyrir svörum. Jóhanna sagðist sjá fyrir sér hraða lækkun vaxta og að þeir gætu verið komnir í 2-3% í árslok

Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er núna á fimmtudaginn.

Ráðherrarnir sögðu að nú lægju fyrir nýjar upplýsingar um skuldastöðu heimila og að á grundvelli þeirra verði hægt að taka ákvörðun um hvort grípa þurfi til frekari aðgerða til að koma til móts við skuldug heimili.  Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að senda Seðlabanka Íslands tillögur umboðsmanns neytenda um neyðarlög um niðurfærslu lána til umsagnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is