Ólafur Ólafsson og Sigurður Einarsson sagðir ætla að sækja um ríkisfang í Sviss.
Staðhæft er í DV í dag að tveir af þekktustu auðmönnum landsins, viðskiptafélagarnir Ólafur Ólafsson, kenndur við Samskip, og Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður Kaupþings, íhugi að sækja um ríkisfang í Sviss. Sigurður hafnar þessu þó í viðtali við blaðið, en segir síðan að hugmyndin sé ekki galin og kannski ætti hann að kanna þetta.
Blaðið segir að Ólafur Ólafsson og fjölskylda hans séu nú búsett í Sviss, alflutt þangað.
DV rifjar upp að þeim fjölgi auðmönnum og útrásarvíkingum sem flytji úr landi. Í því sambandi er nefnt að Halldór J. Kristjánsson fyrrum bankastjóri Landsbankans sé á leið úr landi, þar sem hann fái ekki starf hér. Magnús Þorsteinsson, fyrrum eigandi Landsbankans og Eimskips, sé búsettur í Rússlandi og hafi reynt að flytja lögheimili sitt þangað til að forðast gjaldþrot, en það hafi ekki tekist.
Í DV í dag kemur jafnframt fram að nokkrir þekktir auðmenn hafi skrifað upp á persónulegar ábyrgðir fyrir milljarðaskuldir fyrirtækja sinn og sé því líklegt að þeir verði gjaldþrota innan skamms eins og Magnús Þorsteinsson.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is