Fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafnar ummælum Brown: Engar viðræður við Breta um Icesave
Fastafulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi, Franek Rozwadowski, hafnar því alfarið að sjóðurinn eigi í viðræðum við bresk stjórnvöld um Icesave-málið. Hann segir að um sé að ræða tvíhliða mál sem þurfi að leysa tvíhliða. Sjóðurinn blandi sér ekki í deilur af þessu tagi milli aðildarríkja.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Blaðið sneri sér til fastafulltrúans í tilefni af ummælum Gordons Brown, forsætisráðherra Breta, í breska þinginu á miðvikudaginn. Ráðherrann fullyrti í fyrirspurnartíma að Bretar ættu í viðræðum við AGS um það hve hratt Íslendingar endurgreiddu Bretum vegna innlána í íslenskum bönkum þar í landi.
Fram kemur í Fréttablaðinu að umræðan í breska þinginu snerist um tap Christies-sjúkrahússins í Manchester á innlánum í Singer & Friedlander banka Kaupþings. Brown hafi sagt að bresk stjórnvöld hafi ekki farið með eftirlit með bankanum sem stangast á við þá staðreynd að bankinn var breskur og undir eftirliti breska fjármálaeftirlitsins.
Haft er eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra að ummæli Brown séu undarleg og ólíðandi. Hann staðfestir að borið hafi á því að Bretar líti ekki á Icesave-deilurnar sem tvíhliða mál.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is