Mánudagur 11.05.2009 - 19:01 - Ummæli ()

Berlusconi móðgar Finna með ummælum um ómerkilega kirkju. Átti hann við Þingvallakirkju?

berlusconi-kirkja.jpgFinnar eru furðu lostnir og sármóðgaðir vegna ummæla Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, um finnska timburkirkju, sem hann segir svo ómerkilega að hún hefði verið jöfnuð við jörðu ef hún hefði staðið á Ítalíu. Finnar hallast nú hins vegar að því að Berlusconi hafi misminnt og að hann hafi verið að tala um Þingvallakirkju.

Spurningin er þá orðin þessi: Fór forsætisráðherra Ítalíu niðrandi orðum um kirkjuna á Þingvöllum, einum helgasta stað Íslands?

Greint frá ummælunum í finnska dagblaðinu Helsingin Sanomat á föstudaginn samkvæmt frétt RÚV.

Samkvæmt fréttinni mun Berlusconi í síðustu viku hafa verið sérstakur gestur borgarstjórans í Róm og rætt þar um hversu mikilfenglegar ýmsar byggingar í borginni væru, sér í lagi kirkjurnar. Til samanburðar nefndi hann 18. aldar timburkirkju, sem hann kvaðst hafa þurft að skoða í heimsókn sinni til Finnlands. Hann hefði verið ræstur snemma morguns og síðan hefði verið ekið með sig í þrjár klukkustundir að kirkjunni. Hún hefði hins vegar ekki verið merkilegri en svo, að ef hún hefði verið reist á Ítalíu væri löngu búið að láta jarðýtur jafna hana við jörðu.

Finnar urðu furðu lostnir og móðgaðir yfir lýsingum ráðherrans því Berlusconi hafi einungis einu sinni komið í stutta einkaheimsókn til Finnlands fyrir mörgum árum og engin kirkjuheimsókn hafi þá verið á dagskránni.

Nú eru Finnar hins vegar á því að Berlusconi hafi verið að tala um kirkju á Íslandi en ekki í Finnlandi. Hann kom í heimsókn til Íslands um miðjan maí 2002. Hann hitti Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, í bústað embættisins á Þingvöllum, sem er við hlið kirkjunnar.

Haft er eftir Gianlucca Luzzi ítölskum blaðamanni á La Repubblica sem fylgt hefur Berlusconi á ferðum hans að þetta gæti verið tilfellið. Kirkjuheimsókn hafi verið á dagskránni á Íslandi.

Í Finnlandi vatt málið talsvert upp á sig um helgina. Þannig rifjaði fyrrum utanríkisráðherra Finnlands, Erkki Tuomioja, upp kynni sín af Berlusconi og þá skömm sem hann hefur á honum fyrir m.a. kvenfyrirlitninguna sem hann kynntist í fari hans. Hann rifjaði meðal annars upp að Berlusconi hefði svo reitt til reiði Önnu Lindh heitna, fyrrum utanríkisráðherra Svía, á utanríkisráðherrafundi ESB í Danmörku 2002,  að hún neitaði að tala við hann eftir það.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is