Financial Times: Ísland býst til aðildarviðræðna við ESB
„Ísland vonast til að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið í júlí þrátt fyrir að skiptar skoðanir séu um málið innan ríkisstjórnarinnar og meðal þjóðarinnar,“ segir Financial Times í frétt í dag.
Í frétt á vefsíðu FT segir meðal annars að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi tilkynnt í gær að náðst hafi málamiðlun milli stjórnarflokkanna um aðildartillögu sem lögð verði fyrir Alþingi, þrátt fyrir að flestir þingmenn VG leggist gegn því að hefja aðildarviðræður.
Haft er eftir Jóhönnu að þingmeirihluti sé fyrir aðildarviðræðum.
Fram kemur að Samfylkingin telji sig geta fengið nægilega mörg atkvæði Framsóknarflokksins til að tillagan nái fram að ganga og að kannanir sýni að 60% kjósenda séu fylgjandi aðild. Sá stuðningur hverfi þó auðveldlega ef Íslendingar þurfi að gefa eftir fiskveiðiréttindi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is