„White trash“ partý á Malibu
Þau Heidi Klum og Seal eru með flottari stjörnupörum þessa heims. Þau eru líka mjög ástfangin hjón og til að fagna ástinni endurnýja þau hjúskaparheit sitt á hverju ári.
Í ár buðu þau vinum og vandamönnum í það sem þau kölluðu „White Trash Wedding“ en þar mátti sjá hjónin klædd að hætti hjólhýsarusls.
Venjulega þykja þau með flottari pörum í Los Angeles en í þetta sinn fór lítið fyrir flottheitum. Heidi var með ótal fléttur í hárinu skreyttar perlum, langar gervineglur, klædd í fleginn og gálulegan brúðakjól og til að kóróna þetta allt var hún með gervibumbu undir kjólnum svo að það leit út fyrir að hún væri barnshafandi. Og svo þóttist hún reykja eins og strompur og saug sígarettur í gríð og erg með gloss-smurðum vörum.
Breski söngvarinn Seal var sjálfur í klipptum gallastuttbuxum og skyrtu með mynd af bandaríska fánanum og á höfðinu bar hann skrautlega „sítt að aftan“ hárkollu.
Af brosunum að dæma má þetta hafa verið hin besta skemmtun.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is