Þriðjudagur 12.05.2009 - 00:08 - Ummæli ()

Jóhönnu spáð 11. sæti – Norðmenn vinna

yohanna.jpg

Breskur veðbanki á netinu, Online Betting Guide, spáir því að Jóhanna Guðrún lendi í 11. sæti í Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva með lagið „Is It True“. Líkurnar á að Ísland fari með sigur eru sagðar 28 á móti einum.
Lagið fær þrjár stjörnur af fjórum mögulegum í umsögn vefritsins.

Í umsögninni eru settar fram efasemdir um að Ísland eigi nægar krónur til að taka þátt í keppninni, en á hinn bóginn er það talið jákvætt að ballaða Jóhönnu sé nógu sterk til að ná góðum árangri.
Veðmangarar spá Norðmönnum sigri með afgerandi hætti. Vinningslíkur norska lagsins eru sagðar 13 á móti 8, en Grikkjum er spáð öðru sæti, með 6 á móti einum, og svo Tyrkir og Bosníumenn með 10 á móti einum.

Spáin er hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is