Sunnudagur 17.05.2009 - 17:27 - Ummæli ()

„Ég hef verið myrtur“

[youtube=www.youtube.com/watch?v=243X1pI6-I8&feature=player_embedded]

Rodrigo Rosenberg var myrtur í Guetemala í vikunni. Rosenberg var lögfræðingur og vann að máli fyrir Khalil Musa  og dóttur hans Majorie Musa sem voru myrt í mars síðastliðnum.

Rosenberg tók upp ávarp áður en hann var myrtur og í ávarpinu segir hann: „Ef þú ert að hlusta á þessa upptöku þá hef ég verið myrtur“, hann ásakar í því myndbandinu Álvaro Colom Caballeros, forseta Guatemala, forsetafrúna og menn þeim handgengna um að hafa staðið fyrir morðunum.

FBI mun nú rannsaka morðið á Rosenberg.

Salvör Gissurardóttir skýrir frá þessu og andófinu gegn stjórnvöldum í Guatemala, sem sýnt hefur verið frá á netinu, m.a. á ustream.tv.



«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is