Lán á 35-40% bílaflotans fryst eða breytt. Langflest bílalána sögð í skilum
Í úttekt Morgunblaðsins í dag er áætlað að á bilinu 25-30 þúsund bíleigendur hafi nýtt sér möguleika á frystingu eða annars konar skuldbreytingu bílalána. Þetta þýðir að lánum á 35-40% bílaflotans hafi verið breytt.
Vanskil hafa eitthvað aukist og fjármögnunarfyrirtækin sitja uppi með vaxandi fjölda ökutækja, sem þau reyna að koma aftur í umferð, ýmist sjálf eða gegnum bílasölur, en salan er mjög treg.
Sem dæmi um aukna vörslusviptingu er nefnt að í lok febrúar sl. hafði Íslandsbanki Fjármögnun fengið til baka 140 bíla frá áramótum og nú er sú tala komin upp í 250. Skipta þessir bílar einnig hundruðum hjá flestum öðrum fyrirtækjum, samkvæmt úttekt Morgunblaðsins.
Már Másson, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, segir samt að langstærstur hluti viðskiptavina bankans sé þó í skilum með bílalánin, vanskilahlutfallið upp á 1,6%. Þeir sem nýti sér úrræði bankans geti lækkað greiðslubyrðina töluvert.
Fram kemur að útistandandi bílalán séu á bilinu 150-160 milljarðar króna en ekki allt í erlendri mynt. Þeir sem hafi tekið innlend lán að einhverju eða öllu leyti hafa í litlum mæli nýtt sér frystingu. Flest hafa fyrirtækin þá skilmála að lánin þurfa að vera í skilum til að verða fryst.
Um 2.400 af um 15 þúsund lántakendum hjá Íslandsbanka Fjármögnun hafa nýtt sér úrræði sem felst í um helmingslækkun á afborgunum í átta mánuði og lengingu á samningi um fjóra mánuði. Er þetta svipuð leið og Lýsing býður upp á.
Avant býður þrjá valkosti, sem allir gera ráð fyrir að haldið sé áfram að greiða vextina af láninu næstu átta mánuði. Í fyrsta lagi að greiða 33% af afborgunarhlutanum og þá lengist lánið um fimm mánuði, í öðru lagi að greiða 50% og þá lengist lánstíminn um fjóra mánuði og í þriðja lagi að greiða 66% hluta og þá bætast tveir mánuðir við lánstímann.
SP-Fjármögnun hefur síðan í febrúar boðið sínum viðskiptavinum að greiða sambærilega mánaðargreiðslu og í upphafi samnings, að viðbættum 25% í allt að átta mánuði. Lengist lánið sem því nemur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is