Miðvikudagur 20.05.2009 - 09:15 - Ummæli ()

Eftirlíking á 130 milljónir

damien-hirst.jpgBreski listamaðurinn  Damien Hirst var kærður á dögunum fyrir að hafa „stolið“ og endurgert módel sem ætlað er til líffræðikennslu barna. Endurgerð listamannsins heitir Hymn og er rúmir sex metrar á hæð.

Það var leikfangaframleiðandinn Humbrol sem kærði listamanninn en verkið mun í einu og öllu vera endurgerð af þessu kennsluleikfangi. Leikfangið kostar rúmar 2000 krónur en bronsstyttan Hymn var metin á rúmar 130 milljónir og keypt af listaverkasafnaranum Charles Saatchi.

Niðurstaða kærunnar varð sú að Damien Hirst féllst á að láta ríkulegar fjárhæðir renna í tvenna styrktarsjóði ætlaða börnum en upphæðir voru ekki nefndar opinberlega.

Norman Emms, sá sem hannaði kennsluleikfangið, hefur látið í ljós vonbrigði með niðurstöðuna og sagði að hann hefði ekki fengið talsvert undir 300 þúsund krónum fyrir vinnuna á sínum tíma.

Damien Hirst er fæddur árið 1965. Hann er ríkasti listamaður heims.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is