Er Borgarahreyfingin með lausnina? – Skattleggja vexti af jöklabréfum
Borgarahreyfingin vill athuga hvort 90% skattur á fjármagnstekjur getur leyst vandræði stjórnvalda vegna jöklabréfanna. Þannig mætti koma í veg fyrir að eigendur bréfanna leystu til sín tugmilljarða vaxtatekjur með kunnum afleiðingum; lækkandi gengi krónunnar og hæstu stýrivexti í hinu vestræna hagkerfi.
Tillaga um tímabundinn 90% fjármagnstekjuskatt var til umræðu á fundi þinghóps Borgarahreyfingarinnar í fyrradag, en fundargerðin er nú komin á netið. Tillagan er ekki rökstudd frekar í fundargerðinni, en Jóhann Kristjánsson, framkvæmdastjóri þinghópsins, segir að hreyfingin vilji þessi leið verði athuguð til að aflétta fyrrnefndum vítahring, sem sé að sliga heimili og fyrirtæki í landinu.
„Undir venjulegum kringumstæðum væri þessi hugmynd fráleit, en stjórnvöld verða að átta sig á því að við lifum á fullkomlega óeðlilegum tímum og slíkir tímar krefjast þess að við hugsum út fyrir boxið og leitum óhefðbundna leiða,“ segir Jóhann. Hann bendir á að enn sé óvíst hver hefur vald til að lækka stýrivexti, enda hafi fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sagt að frekari vaxtalækkun væri ekki í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda og AGS. Því væri ólíklegt að vextir lækkuðu að nokkru ráði í júní, en á sama tíma hefur verið rætt um að eigendur jöklabréfanna kynnu að innleysa vexti af bréfunum. Það myndi þrýsta aftur á gengi krónunnar, sbr. gengislækkunina fyrr í vor, en nú væri mikilvægast að styrkja gengið en ekki fella það frekar.
„Heimilum og fyrirtækjum blæðir vegna gengishruns og ofurvaxtastefnu. Ef stjórnvöld hafa ekki vald til að lækka vextina, þá verður að leita annarra leiða. AGS virðist ekki skipta sér af skattastefnunni og því má einfaldlega skattleggja fjármagnstekjur af jöklabréfunum. Þannig yrði komið í veg fyrir að tugum milljarða yrði dælt úr íslenska hagkerfinu. Við spyrjum: Hverja eru stjórnvöld að vernda? íslenskan almenning eða eigendur jöklabréfanna? Nú síðast í gær spurði Þór Saari fjármálaráðherra á Alþingi hverjir væru eigendur jöklabréfanna, en ráðherra svaraði ekki. Ráðamenn verða að fara að vakna og láta hendur standa fram úr ermum.“
Jóhann tekur fram að slíkur fjármagnstekjuskattur yrði aðeins lagður á hærri fjárhæðir, þannig að ekki að stæði til að hækka skatta á hefðbundinn sparnað almennings. Þá verði að hafa í huga að hugmyndin er aðeins tímabundin, enda neyðarástand í landinu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is