Miðvikudagur 20.05.2009 - 15:33 - Ummæli ()

Glitnir fær erlent fyrirtæki til að rannsaka „óeðlilegar millifærslur“ fyrir hrun bankans

glitnir-kirkjusandur.jpgGlitnir banki hefur samið við ráðgjafafyrirtækið Kroll um að aðstoða við rannsókn á frávikum og hugsanlegum óeðlilegum millifærslum í aðdragandanum að hruni bankans. Markmið rannsóknarinnar er að leita uppi og endurheimta eignir hjá þeim sem kunna að hafa hagnast á slíkum frávikum.

Kroll er sjálfstætt fyrirtæki sem starfar á heimsvísu og er leiðandi í rannsókn fjármálabrota, samkvæmt tilkynningu frá Glitni. Samningur Glitnis er við skrifstofu Kroll í Lundúnum.

„Sérfræðingar Kroll, sem taka þátt í þessu verkefni, hafa víðtæka reynslu af rannsóknum afbrota sem tengjast hruni fyrirtækja og hafa stjórnað viðamiklum aðgerðum til að endurheimta eignir í slíkum málum. Samningurinn við Kroll endurspeglar þá staðföstu ákvörðun bankans að upplýsa öll brot sem kunna að hafa verið framin í tengslum við fall bankans og að hámarka endurheimt verðmæta í þágu kröfuhafa bankans,“ segir í tilkynningunni sem sagt er frá á mbl.is.

Ekki kemur fram hvort bankinn hafi samráð í þessum málum við þá opinberu aðila sem skoða nú málefni tengd bankahruninu, sérstakan saksóknara, rannsóknarnefnd Alþingis eða Fjármálaeftirlitið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is