Karlmennskan hans Rourke
Mickey Rourke er langt frá því að vera það sem við köllum „venjulegur“ maður. Hann er eiginlega allt annað en venjulegur og það gildir jafnt um útlit sem lifnaðarhætti.
Þetta sannaði ljósmyndari nokkur enn og aftur þegar hann náði mynd af leikaranum stíga inn í bíl sinn að loknum hádegisverði með vinum. Þar beið hans nefninlega vinalegur páfagaukur sem stökk beint á öxlina á Mickey og hafði sig hægan.
Mickey Rourke er mikill dýravinur. Hann hefur til dæmis átt fjölmarga chihuahua hunda í gegnum tíðina. Meðal annars átti hann þá Loka, Jaws, Ruby Baby, La Negra og Bella Loca alla á sama tíma og þykir það harla skemmtilegt fyrir svo karlmannlegan mann.
Loki lést í fanginu á „pabba“ sínum í febrúar s.l, orðinn 18 ára gamall.
Til gamans má geta þess að kraftajötuninn Magnús Ver hefur ræktað persaketti. Þessir tveir hefðu kannski gaman af að hittast?
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is