Miðvikudagur 20.05.2009 - 16:44 - Ummæli ()

Hval rak á fjörur Sandgerðinga

hvalreki.jpgHvalreki uppgötvaðist við Norðurkot í Sandgerði í morgun, að því er segir á vefnum Lífið í Sandgerði.

Að sögn Reynis Sveinssonar forstöðumanns Fræðasetursins er hér um hnúfubak að ræða.

Hvalurinn var í fyrstu sagður  lifandi, en hann mun vera dauður.

Björgunarsveitin Sigurvon er í viðbragðsstöðu og býður fyrirmæla frá Umhverfisstofnun, Lögreglunni og Hvaladeild Hafró.

Norðurkot er eitt stærsta æðavarp landsins og þar sem nú er varptími getur almenningur ekki farið í fjöruna þar sem hvalrekinn er, en hann sést vel frá veginum.

Hér er myndband af hvalnum í fjörunni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is