Miðvikudagur 20.05.2009 - 15:55 - Ummæli ()

Strauss-Kahn: Aðgerðir ríkisstjórnar Íslands í bankahruninu mistókust

dominique-strauss-kahn.jpgDominique Strauss-Kahn framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) segir að ríkisstjórn Geirs Haarde hafi brugðist rangt við fjármálakreppunni í haust og að mistök hafi verið gerð.

Strauss-Kahn gagnrýndi viðbrögð íslenskra stjórnvalda við kreppunni í ræðu um áfallastjórnun og samhæfðar aðgerðir í fjármálakreppunni, sem hann flutti um í Vín í síðustu viku.

Sagt er frá ræðunni á viðskiptasíðu Vísis.is.

„Ég get bent á ákveðin dæmi þar sem samræmdar aðgerðir mistókust eins og við gjaldþrot Lehman og hruns íslenska bankakerfisins,“ sagði Strauss-Kahn. „Þegar Lehman féll gripu þjóðir strax til þess ráðs að slá skjaldborg um eignir innan eigin lögsögu. Á Íslandi kom upp svipað dæmi. Þótt að íslensku bankarnir hefði fjölda af erlendum innistæðueigendum brugðust stjórnvöld í því að samhæfa aðgerðir sínar ásamt þeim þjóðum sem áttu hlut að máli.“

Strauss-Kahn sagði síðan að viðkomandi þjóðir hefðu mætt þessu með því að yfirtaka eigur íslensku bankanna til að verja eigin innistæðueigendur. „Þetta var ekki besta útkoman,“ sagði Strauss-Kahn.

„Mistök voru gerð en stjórnvöld lærðu af þeim mistökum og eru enn að læra. Eftir því sem fjármálakreppan þróaðist og varð að stærra alþjóðlegu vandamáli urðu viðbrögðin við henni meira samræmd.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is