Bók um Ísland og ESB: Íslendingar ættu að stefna að því að fá að stjórna sjávarútvegsmálum ESB
Íslendingar ættu að gera það eitt af samningsmarkmiðum sínum, ef til aðildarviðræðna við Evrópusambandið kemur, að væntanlegur fulltrúi Íslands í framkvæmdastjórninni yrði settur yfir sjávarútvegsmálin. Norðmenn fengu slíkt vilyrði í samningaviðræðum sínum árið 1994.
Þetta segir Auðunn Arnórsson stjórnmálafræðingur og blaðamaður í nýútkominni bók Inni eða úti? þar sem er að finna nákvæman leiðarvísi um það ferli sem fer í gang þegar ríki sækja um aðild að Evrópusambandinu.
Í bókinni fer Auðunn yfir það hvaða atriði muni reynast auðleyst, miðlungserfið og torsótt í samningaviðræðum Íslendinga og Evrópusambandsins. Rekur hann hvernig viðræður um einstaka málaflokka hafa gengið fyrir sig á fyrri árum og ræðir þau fordæmi sem það skapar.
Fram kemur í bókinni að Ísland hefur með aðild sinni að Evrópska efnahagssvæðinu þegar tekið upp um 2/3 af lagasafni Evrópusambandsins. Ítarlega er farið yfir þau lagaákvæði sem eftir standa, en þar vega þyngst að mati höfundarins sjávarútvegs- og landbúnaðarmál, Efnhags- og myntbandalagið og byggða- og þróunarsjóðskerfi ESB.
Auðunn segir í lok bókarinnar að náist að gera sanngjarnan aðildarsamning, sem tryggi grundvallarhagsmuni Íslands en skuldbindi Íslendinga jafnframt til að axla ábyrgð á framtíðarþróun Evrópu til jafns við aðrar aðildarþjóðir Evrópusambandsins, sé full ástæða til að vænta þess að þessi áfangi í sögu Íslands og Evrópu verði farsæll. Íslendingar standi frammi fyrir því að velja hvort þeir vilji vera inni eða úti í samstarfi sjálfstæðra lýðræðisþjóða Evrópu, því að það fari fram innan Evrópusambandsins, hvort sem mönnum líki það betur eða verr.
Bókin Inni eða úti? Aðildarviðræður við Evrópusambandið er gefin út af Alþjóðamálastofnun og Rannsóknasetri um smáríki í samvinnu við Háskólaútgáfuna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is