Ewan (38) er hættur að drekka
Leikarinn geðþekki Ewan McGregor sem leikur t.a.m í hinni vinsælu Angels & Demons hefur haft nokkra djöfla að draga í eigin lífi.
Í viðtali við tímaritið Mens Health, greinir leikarinn skoski fra því að sér hafi þótt svolítið töff að reykja hér á árum áður. Svo hafi hann gert sér grein fyrir skaðsemi reykinga og hætt. Það sama gerðist með áfengið. „Það sem skiptir máli, sama hvort maður er að reyna að léttast eða láta af drykkju og reykingum, er viljinn til að neita sér um þetta og leita um leið hjálpar. Það er þessi rödd í höfðinu sem segir -Ég vel að gera þetta ekki- sem er úrslitavaldur í því hvort þér tekst að gera raunverulegar breytingar í lífinu eða ekki,“ segir Ewan og bætir við að hann hafi ekki viljað vera maður sem deyr af völdum einhvers sem hægt er að koma í veg fyrir.
„Ég hef aldrei getað reykt eða drukkið hóflega og ég áttaði mig á að þetta gæti að lokum drepið mig á einn eða annann hátt. Ég byrjaði að sjá fyrir mér lækninn segja mér að ég ætti skammt eftir ólifað þar sem ég væri kominn með krabbamein af völdum reykinga og þegar þessar myndir komu í kollinn, áttaði ég mig á því að ég vildi alls ekki deyja frá konu minni og börnum af einhverju sem ég gæti vel komið í veg fyrir sjálfur.“
Ewan McGregor hefur verið giftur franska hönnuðinum Eve Mavrakis í fjórtán ár og gengur sambúð þeirra eins og best verður á kosið.
„Ef maður eyðir of miklum tíma í að vinna í sambandinu þá áttu eflaust ekkert að vera í þessu sambandi,“ segir Ewan. „Frá því að við Eve hittumst hefur samband okkar verið rétt en ég ætla ekki að reyna að skýra ástæðurnar að baki. Við Eve höfum aldrei þurft að vinna að neinu. Við erum bara með þetta. Ef þú laðast sterklega að einhverjum, líður vel og berð virðingu fyrir manneskjunni þá sér restin um sjálfa sig. Þetta á ekkert að vera neitt mál,“ segir töffarinn skoski að lokum en viðtalið allt má lesa í júníhefti Mens Health.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is