Kirkjuráð hlýðir á raunir Sigrúnar Pálínu vegna fyrrum biskups. Vill afsökunarbeiðni Þjóðkirkjunnar
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir og Stefanía Þorgrímsdóttir segja að Þjóðkirkjan hafi þaggað niður í þeim og þeim konum í viðbót sem sögðu frá kynferðislega áreitni þáverandi biskups Íslands, sr. Ólafs Skúlasonar, í þeirra garð fyrir fyrir 13 árum.
Sigrún Pálína, sem rakti sögu sína þættinum Sjálfstæðu fólki á Stöð 2 í gærkvöldi og í Kastljósi í kvöld, lýsti því í viðtalinu í gær við Jón Ársæl Þórðarson hvernig núverandi biskup, sr. Karl Sigurbjörnsson og Hjálmar Jónsson, núverandi dómkirkjuprestur, tók þátt í þeirri þöggun á sínum tíma.
Stefanía sagðist í Kastljósi í kvöld að sér og fleiri konum „hafi af Þjóðkirkjunni hreinlega verið varpað fyrir vargakjafta. Allir fjölmiðlar í landinu höfðu veiðileyfi á okkur og við vorum gerðar eins ótrúverðugar og hægt var. Í mínum huga var þetta eins konar galdrabrenna 20. aldarinnar.“ Hún segist ekkert hafa fyrirgefið og muni aldrei fyrirgefa kirkjunni.
Sigrún Pálína hefur ákveðið að snúa aftur til Íslands eftir að hafa fundist hún á sínum tíma þurft að hverfa af landi brott vegna málsins. Hún fer nú fram á opinbera afsökunarbeiðni frá Þjóðkirkjunni. Hún segir að konurnar í tilviki Ólafs Skúlasonar hafi verið fjórar talsins og fleiri hafi haft samband í síma. Hún vill að kirkjan takist á við mjög alvarleg mál eins og kynferðislega misnotkun rétt eins og aðrar stofnanir.
Hún segist hafa rætt við sr. Karl biskup í fyrrahaust, en hann hafi algerlega brugðist henni á sínum tíma. Nú hafi hún hins vegar fengið því framgengt að kirkjuráð muni hlýða á mál hennar 19. júní, á kvenréttindadaginn.
Sr. Karl Sigurbjörnsson bað konur og börn, sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar, fyrirgefningar á þeirri þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið, í setningarræðu Prestastefnu Íslands í lok síðasta mánaðar. Hann tiltók ekki tilefnið sérstaklega, en minnti á ákvæði um meðferð kynferðisbrotamála í kirkjunni í siðareglum Prestafélags Íslands. Hann sagði að kirkjunnar þjónar yrðu að taka mark á þessu og fylgja því eftir í starfi kirkjunnar.
Að undanförnu hefur einnig verið mikið fjallað opinberlega um kærur sóknarbarna á hendur sr. Gunnari Björnssyni á Selfossi, sem hann var nýverið sýknaður af.
Sr. Bjarni Karlsson, prestur í Laugarneskirkju sagði í Kastljósi í kvöld að kirkjan þurfi að endurreisa heiður þessara kvenna. Hann sagði að kirkjan hefði farið í fát og í stað þess að vera það sálgæslusamfélag sem hún verður að vera, „þá gerðum við prestarnir og yfirstjórn kirkjunnar þau mistök að úrskurða í stað þess að halda utan um velferð og heiður allra aðila málsins.“
Hann segir ekki hafa vetur til tekist en svo að öllum þessum árum síðar sitji íslenskt samfélag uppi með þennan óunna sársauka.“ Hann segir að síðan hafi þó verið unnið markvisst að þessum málum undir forystu núverandi biskups, settar starfsreglur um meðferð kynferðisbrota og komið á laggirnar fagráði um kynferðisofbeldi. Markmiðið sé að gera kirkjuna að öruggum stað svo engin þurfi að velkjast í vafa um það. „Kirkjan þarf að vera heil og hún þarf að vera heilbrigð,“ sagði Bjarni, sem segist hafa fullt traust á því að kirkjuráð hlusti „af athygli og faglegri yfirsýn á mál Sigrúnar Pálínu og hennar líðan og þá vafalaust í framhaldinu á þessar konur allar.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is