Wall Street Journal: Íslensku lífeyrissjóðirnir ljósið í myrkrinu
Wall Street Journal segir frá því í frétt í dag að ljósið í myrkri íslenska bankahrunsins sé staða íslensku lífeyrissjóðanna sem hafi að mestu staðið af sér hrunið.
Það, og annað sæti Yohönu í Eurovision.
Haft er eftir Robin Creswell, forstöðumanni hjá fjárstýringarfélaginu Payden & Rygel, að eignavirði sjóðanna hafi að meðaltali aðeins fallið um 9,2% árið 2008. Félagið stýrir erlendum fjárfestingum hjá þremur af stærstu lífeyrissjóðunum hér á landi.
Þetta sé gott í samanburði við 95% fall á íslenska hlutabréfamarkaðinum og 45% niðursveiflu heimsvísitölu Dow Jones. Bent er á að þegar íslenska lífeyrissjóðakerfið sé borið saman við kerfi 10 Evrópulanda lendi það íslenska í öðru sæti, næst á eftir því svissneska.
Haft er eftir Hrafni Magnússyni forstjóra Sambands lífeyrissjóða að kerfið hafi haldið styrk sínum þrátt fyrir erfiðleikana. Erlendar fjárfestingar kerfisins séu um 30% af heildarfjárfestingu og að 45% fall krónunnar hafi gefið innspýtingu.
Einnig segir í fréttinni að lífeyrissjóðirnir hafi næstum verið búnir að tapa þessari innspýtingu síðasta haust þegar ríkisstjórnin lagði að þeim að færa erlendar eignir sínar heim. Sumir smærri sjóðanna hafi látið undan þrýstingi stjórnvalda en margir hinna stærri neituðu.
Creswell segir að nú þrýsti nokkrir sjóðanna á stjórnvöld að aflétta gjaldeyrishöftunum svo sjóðirnir geti aukið fjölbreytni eignasafnsins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is