Föstudagur 29.05.2009 - 19:24 - Ummæli ()

Stefna AGS kemur í veg fyrir að Ísland komist úr kreppunni

olafur-isleifsson2.jpgÍ yfirlýsingu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins frá því í morgun er ekki fjallað um neinar aðgerðir sem gripið hafi verið til, né um árangur af samstarfi sjóðsins og íslenskra stjórnvalda hingað til. Það segir Ólafur Ísleifsson lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Ólafur segir sérstaklega áberandi að ekki sé fjallað um að ekki hafi tekist að ná stöðugleika í gengismálum, sem hafi verið höfuðmarkmið. Ekkert sé fjallað um þátt vaxtanna í því sambandi þó það mál hafi verið tekið upp í peningastefnunefnd Seðlabankans. Í fundargerðum þeirra virðist vera nokkrar efasemdir um það hvert nákvæmlega sé samband stýrivaxtanna og gengisins. Gengið hafi lækkað hér að mun eftir að hafa styrkst framanaf, en það hafi verið tímabundin styrking.

Háir vextir og höft hefta möguleika Íslands

Ólafur segir merkilegt að AGS vilji halda gjaldeyrirshöftum og hávaxtastefnu, þrátt fyrir að augljóst sé að sú stefna hafi ekki virkað.

Undir þetta tók Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í fréttum Sjónvarpsins í kvöld.  „Háir vextir og gjaldeyrishöft eru að hefta okkur í að komast út úr þessari kreppu. Þessu verður að breyta,“ sagði Vilhjálmur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is