Konur vilja sleikja Craig
Breskar konur vita hvað þær vilja sleikja.
Eftir að hafa gert „vísindalega rannsókn“ meðal frostpinnaunnenda komust markaðssérfræðingar frostpinnaframleiðandans Del Monte að fróðlegri niðurstöðu. Eittþúsund breskar konur vilja sleikja Daniel Craig.
Því mun sérstakur Daniel Craig frostpinni vera boðlegur í breskum frostpinnabúðum til sjöunda þessa mánaðar.
Frostpinninn er nokkuð nákvæm eftirlíking af leikaranum karlmannlega sem er þekktastur fyrir að leika njósnarann knáa, James Bond. Höfuð, herðar og eitthvað niður fyrir nafla.
Del Monte sáu hag sinn tryggðan með því að geta þess í smáa letrinu á umbúðunum að þau taka enga ábyrgð á hverskonar líkamlegum skaða sem fólk getur valdið sjálfu sér með þessum frostpinna.
Þá er bara að leyfa ímyndunaraflinu að fylla í eyðurnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is