Þriðjudagur 02.06.2009 - 16:39 - Ummæli ()

Ný könnun: Áhersla á heimili og fyrirtæki en pattstaða um ESB-umsókn

esbflagg2.jpgEkki er marktækur munur á hve margir telja að leggja beri mikla eða litla áherslu á aðildarumsókn við Evrópusambandið, samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallups fyrir Heimssýn, sem berst gegn aðildarumsókn Íslands.

Spurt var: Hversu mikla eða litla áherslu finnst þér að ríkisstjórn eigi að leggja á að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið?

Alls sögðust 44,2% að leggja ætti litla áherslu á aðildarviðræður en 41,9% töldu að leggja ætti mikla áherslu á viðræður. Munurinn er innan vikmarka og telst því ekki marktækur.

Stuðningur eykst eftir menntun og tekjum

Afstaða fólks skiptist nokkuð jafnt eftir kynjum og aldri. Hinsvegar er marktækur munur á afstöðu eftir búsetu, tekjum og menntun. Samkvæmt könnuninni er meiri stuðningur við aðildarumsókn í höfuðborginni en á landsbyggðinni, eða meðaltalið 3,2 á móti 2,5 á skalanum 1 til 5.  Þá er mest fylgi við aðildarumsókn í tekjuhæsta hópnum, meðaltalið 3,5, og stuðningur vex einnig eftir menntun, því mestur stuðningur er hjá háskólamenntunuðum (3,3) en minnstu stuðningur hjá þeim sem aðeins hafa grunnskólapróf (2,6).

Skýr ósk um að leysa fjárhagsvanda heimila og fyrirtækja

Í sömu könnun var spurt hvort ríkisstjórnin ætti að leggja mikla eða litla áherslu á að leysa fjárhagsvanda heimilanna og vanda fyrirtækjanna. Varla kemur á óvart að  afgerandi stuðningur er fyrir því áherslu ríkisstjórnarinnar á þessum sviðum. 95,2% sögðu að leggja ætti áherslu á að leysa vanda heimilanna og 91,5% styðja aðgerðir fyrir fyrirtækin. Þetta jafngildir meðaltalinu 4,7 og 4,5 á skalanum 1 til 5.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is