Þriðjudagur 02.06.2009 - 18:04 - Ummæli ()

Tveir ráðherrar og tveir þingflokksformenn hittu Dalai Lama. Kínverjar mótmæla

dalai-lama.jpgSendiherra Kína gekk á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins í morgun og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins vegna þeirra funda sem Dalai Lama hefur átt með íslenskum ráðamönnum.

Vísir hefur þetta eftir Urði Gunnarsdóttur, fjölmiðlafulltrúa utanríkisráðuneytisins, en sendiherrann tilkynnti ekki um neinar frekari aðgerðir vegna heimsóknarinnar af hálfu sendiráðs Kína.

Ríkisútvarpið telur sig hafa heimildir fyrir því að sendiherrann hafi verið kallaður heim.  Þar sagði Jóhanna Sigurðardóttir,  forsætisráðherra, að málið væri alfarið mál Kínverja og að enginn skýring hefði verið gefin af þeirra hálfu.

Allt stefndi reyndar í að enginn ráðherra ætlaði að hitta Dalai Lama, en svo fór þó að tveir ráðherrar tóku á móti honum á fundi í hádeginu, þau Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, og Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra. Með þeim á fundinum voru tveir þingflokksformenn, Birgitta Jónsdóttir, Borgarahreyfingu, og Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingu.

Þau Ögmundur, Birgitta og Björgvin hafa öll áður haft sig í frammi þegar málefni Tíbeta og mannréttindi í Kína bera á góma. Ögmundur og Birgitta hafa margsinnis skrifað um Tíbet á bloggsíður sínar og Björgvin var heiðraður sérstaklega af vinum Tíbeta í fyrra, sbr. hér.

Þá tók Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, á móti trúarleiðtoganum í Alþingishúsinu og ríkti mikil gleði á fundinum, sbr. myndefni frá mbl.is.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is