Fimmtudagur 04.06.2009 - 08:06 - Ummæli ()

AGS er hér fyrir alþjóðlega fjármagnseigendur en ekki fyrir Íslendinga

gudfridur-lilja2.jpg„Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur engan áhuga á íslensku samfélagi eða að koma hér upp betra lífi.“

Þetta sagði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, í umræðum á Bylgjunni í morgun. Hún ræddi þar hugsanlega stýrivaxtalækkun Seðlabankans í dag, ásamt Pétri Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Guðfríður Lilja taldi vald AGS of mikið hér á landi og sagði hann beita sér fyrir háum vöxtum hér á landi til að vernda erlenda fjármagnseignedur, jafnvel þó að það kæmi sér illa fyrir íslenskt samfélag.

„Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn verndar fyrst og fremst hagsmuni alþjóðlegra fjármagnseigenda,“ sagði Guðfríður Lilja og fullyrti að AGS væri einfaldlega varðhundur heimskapítalismans.

„Þetta er stofnun sem hafði minnkandi hlutverki að gegna á undanförnum áratugum. Þess vegna var Ísland himnasending fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn,“sagði þingkonan.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is