Föstudagur 05.06.2009 - 16:44 - Ummæli ()

Megan (23) og tattúin

meganfox.jpgKynbomban úr Transformers myndunum, Megan Fox, er mjög hrifin af húðflúrum.

Vandinn er bara sá að í hvert sinn sem hún fær sér nýtt tattú þá þarf hún að rífast við mömmu sína um verknaðinn.

Móðir hennar, Darlene, er mikið á móti húðflúrum og heldur því fram að þegar Megan verið fertug þá muni enginn vilja ráða hana í hlutverk, verandi með svona mörg húðflúr á fallegum líkamanum.

Megan er aldeilis ósammála mömmu sinni með þetta. Hún bendir í því samhengi á Angelinu Jolie sem er eftirsóttasta leikkonan í Hollywood í dag. Þó að líkami hennar sé vel skreyttur húðflúrum stendur ekkert á tilboðum um hlutverk.

Megan Fox er núna með átta tattú víðsvegar um skrokkinn. Mest langar setningar og tilvitnanir.

Hún planar að fá sér „ermi“ en það er húðflúr sem hylur allann handlegginn frá öxl og yfir olnbogann -og mamma hennar er brjáluð.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is