Mánudagur 08.06.2009 - 17:07 - Ummæli ()

Útrásarvíkingar fengu 130 milljarða frá Landsbankanum í London

landsbanki-london.jpgSamkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu Stöðvar 2 námu heildarútlán Landsbankans til íslensku útrásarinnar að minnsta kosti 130 milljörðum króna. Helstu viðtakendur lánanna voru annars vegar fyrrum eigendur bankans og svo hinsvegar fyrirtæki tengd Baugi.

Ekki kemur fram hvort þessi lán séu hluti af því „trausta eignasafni“, sem stjórnvöld segja að verði notað til að greiða niður höfuðstól vegna Icesave skuldbindinga.

Eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum er ráðgert að eignir Landsbankans í London gangi upp í skuldir íslenska ríkisins vegna Icesave innistæðna. Þannig er vonast til að höfuðstóllinn minnki jafnt og þétt áður en komi til fyrstu greiðslu að sjö árum liðnum.

Sú upphæð sem íslenska ríkið ábyrgist vegna þeirra nemur 2.2 milljörðum punda í Bretlandi og rétt rúmum milljarði í Hollandi, alls 3.25 milljörðum punda eða 654 milljörðum íslenskra króna samkvæmt gengisskráningu Seðlabanka Íslands í dag.

Fjallað verður nánar um þessi lán Landsbankans í London í kvöldfréttum Stöðvar 2 á eftir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is