Eva Joly ósátt með seinagang mála – íhugar að hætta afskiptum af íslenska hruninu
Eva Joly íhugar að hætta afskiptum af rannsókn á íslenska efnahagshruninu. Hún kom til landsins í gær og fundar þessa stundina með Ólafi Haukssyni, sérstökum saksóknara, um framhald málsins.
Eyjan hefur undir höndum tölvupóst sem staðfestir óánægju Evu með gang mála og hvernig hún álítur að reynt sé að torvelda störf hennar. Þá finnst henni ekki nægilega farið eftir hennar ráðgjöf. Hún undrast líka hve illa gengur að koma upp vinnuaðstöðu fyrir hana og aðstoðarmann hér á landi.
Eva Joly er enn sem komið er eini erlendi sérfræðingurinn sem ríkisvaldið hefur fengið til liðs við sérstakan saksóknara en hún hefur óskað eftir því að erlendum sérfræðingum verði fjölgað. Hún hefur lagt til að bókhald bankanna verði haldlagt og rannsakað í heild í stað þess að skoða aðeins einstök mál.
Til stóð að hún veitti ráðgjöf til ársloka 2010. Mbl.is og DV segja að fundir í dag og á morgun ráði úrslitum um hvort hún heldur áfram störfum fyrir sérstakan saksóknara.
„Hún hefur reynslu og þekkingu á sviði rannsókna á flóknum efnahagsbrotum sem hún hefur miðlað til embættisins sem og tengingar við sérfræðinga erlendis sem hún getur vísað til,“ segir Ólafur við DV.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is