Ísland einu marki undir í hálfleik, 1-0
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er einu marki undir í leikhléi gegn Makedónum. Heimamenn skoruðu markið strax á 10. mínútu, en íslenska liðið hefur ekki átt teljandi tækifæri á að skora.
Fimm breytingar voru gerðar á byrjunarliði Íslands frá leiknum gegn Hollandi á laugardag, enda þrír í leikbanni (fyrirliðinn Hermann, Aron Einar og Indriði) og Eiður Smári meiddur auk þess sem Birkir dettur út úr liðinu. Í þeirra stað hófu leikinn þeir Sölvi Geir Ottesen, Emil Hallfreðsson, Eggert Gunnþór Jónsson, Brynjar Björn Gunnarsson og Arnór Smárason.
Enn er von, 45 mínútur eftir af leiknum. Steikjandi hiti og sól er á vellinum og sá dómarinn ástæðu til að stöðva leikinn um miðjan hálfleikinn til að leikmenn gætu vætt kverkarnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is